- Þú ert hér »
Afhendingarmátar
Midi.is mun framvegis bjóða viðskiptavinum sínum að velja milli mismunandi afhendingarmáta þegar miðar eru keyptir eru á http://midi.is
Afhendingarmátarnir sem um ræðir eru fjórir í heildina. Ekki er búið að virkja þá fyrir alla atburði sem eru í sölu og stefnan er að virkja þá einungis á atburðum sem nýfarnir eru í sölu.
Afhendingarmátarnir eru:
E-miðar – Keypta miða prentar þú út sjálf/ur, heima eða í vinnunni. (kostnaður: 0 kr,-)
Almennur póstur – Keyptir miðar verða sendir í almennum pósti á heimilisfangið sem gefið er upp við miðakaup. (kostnaður: 595 kr,-)
Ábyrgðarpóstur – Keyptir miðar verða sendir í ábyrgðarpósti á heimilisfangið sem gefið er upp við miðakaup. (kostnaður: 1.595 kr,-)
Afgreiðslustaðir – Keypta miða þarf að sækja á einhvern af afgreiðslustöðum Midi.is. (kostnaður: 0 kr,-)
Þar sem um nýja þjónusta hjá Midi.is er að ræða þá er hún ekki í boði á öllum atburðum sem eru í sölu á vefnum okkar. Við hinsvegar stefnum að því á nýju ári að flestir atburðir sem eru í sölu á http://midi.is hafi þessa valmöguleika. Þó gæti verið að einstaka atburðir væru eingöngu með einn valmöguleika, en sá valmöguleiki yrði alltaf frír.
Midi.is er með þessu að bæta enn frekar þjónustu við sína viðskiptavini.

