- Þú ert hér »
Ljósgæði - Lífsgæði

Í ljósi breyttra aðstæðna í mannvirkjagerð hér á Íslandi, eru þó tækifæri til endurmats og uppbyggingar fyrir nýja tíma og nýjar stefnur. Raunhæft er að ætla að áherslur í framtíðinni verði á hönnun til sjálfbærni og þar með talið við hönnun lýsingar þar sem kröfur um orkusparnað og vellíðan þeirra sem innan bygginganna eru hafa aukist.
Ráðgjafarfyrirtækið Verkís mun standa fyrir opnu málþingi sem ber heitið „LJÓSGÆÐI | LÍFSGÆÐI“ þriðjudaginn 13.október næstkomandi í Laugardalshöll – ráðstefnusal 3, þar sem fyrirlesararnir Dr. Brainard Taugalæknir og sérstakur ráðgjafi NASA, Merete Madsen dagsbirtu arkitekt, Kevan Shaw lýsingarhönnuður og formaður nefndar um PLDA - Alþjóðlegum samtökum lýsingarhönnuða og Martin Lupton frá Guerrilla Lighting og formaður PLDA, munu miðla nýjum rannsóknum og þeim möguleikum sem við höfum á að bæta umhverfi okkar og vellíðan með birtu. Málþingið er ætlað öllum sem vilja fræðast um gildi lýsingar og eiga þátt í að bæta umhverfi sitt og annarra.
Félagsmenn arkitektafélagsins, verk- og tæknifræðingar, námsmenn, starfsmenn Verkís og félagsmenn Ljóstæknifélags Íslands fá miðann á sérstökum afsláttarkjörum.
Vinsamlegast hafið samband við Verkís til að virkja afsláttinn.
-Þórdís Rós Harðardóttir - trh@verkis.is
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 13.10.09 - Þriðjudagur | 13:00 | Ljósgæði - Lífsgæði - Málþing | Laugardalshöll Salur3 | Verkís hf | 7.800 kr. |


