- Þú ert hér »
Dr. Tal Ben- Shahar

Jákvæð sálfræði – gerir Íslendinga sterkari til að sigrast á kreppunni!
Vinsælasti fyrirlesari Harvard háskóla og metsöluhöfundurinn Dr. TAL BEN-SHAHAR kemur til Íslands og heldur fyrirlestur í Háskólabíó, laugardaginn 27. mars n.k.
Fyrirlesturinn fjallar um ný lífsgildi í kjölfar kreppu og hvernig nýta megi jákvæða sálfræði til að öðlast meiri og betri hamingju”. Á ensku heitir fyrirlesturinn “Positive Psychology for Difficult Times”..
Fyrirlesturinn fer nú eins og eldur um sinu út um allan heim og er sérstaklega vinsæll í þeim samfélögum sem eiga í erfiðleikum, eins og Ísland glímir við í dag.
Vinsælasti Fyrirlestur Harvard Háskóla
Dr. Ben-Shahar, er heimsþekktur sem "hamingjuprófessorinn í Harvard". Þar kennir hann vinsælasta námskeiðið í sögu skólans, "Hamingjukúrsinn". Hann hefur vakið þjóðarathygli í Bandaríkjunum með kenningum sínum og kennslu í jákvæðri sálfræði, enda hafa fjölmiðlar þar í landi keppst um að gera hugmyndum hans skil. Einnig ferðast með fyrirlesturinn út um allan heim.
Nú má spyrja hvaða erindi Dr. Ben-Shahar eigi við okkur Íslendinga einmitt núna, en þeirri spurningu svarar hann best sjálfur: "Erfiðir tíma geta sundrað okkur en þeir geta líka gert okkur sterkari. Rannsóknir í jákvæðri sálfræði og tengdum greinum hafa sýnt fram á hvernig hægt er að komast í gegnum slík tímabil og rísa uppúr þeim sterkari en fyrr. Von mín er að mér takist að kynna sem flestum rannsóknirnar, tólin og tækin sem gera sem flestum kleift að nýta sér þau til að sigrast á erfiðum aðstæðum."
Mögnuð Reynsla
"Það var mögnuð reynsla að þýða "Meiri hamingju", einkum og sér í lagi á þessum tíma í lífi okkar Íslenginga. Þegar ofurtrú okkar á efnisleg gæði hafði brugðist svona illilega var það þörf ábending að hamingjan er í höndum okkar sjálfra en ekki þeirra sem stjórna ytri aðstæðum okkar. Það er undir okkur sjálfum komið hvort við njótum hamingju, eða hvort við leyfum ömurleikanum að taka völdin í lífi okkar. Flest af því sem Tal Ben-Shahar hefur að segja höfum við heyrt áður, en hann sýnir þá snilli að setja þessi sannindi fram á einfaldan og viðráðanlegan hátt - allt í einu blasir það við að við getum höndlað hamingjuna og það er í rauninni ekkert sérstaklega flókið." -- Karl Ágúst Úlfsson
Það er Concert sem flytur Dr. Tal Ben-Shahar til landsins en Concert hefur áður flutt til landsins heimþekkta og fræga fyrirlesara eins og Steve Forbes, Mikhail Gorbachev og Joe Simpson (Touching the void ).
Fyrirlesturinn tekur um 90 mínútur og eftir það tekur hann við spurningum úr sal.
Miðasala á atburðinn
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.03.10 - Laugardagur | 12:00 | Dr. Tal Ben- Shahar - Positive Psychology for Difficult Times | Háskólabíó | Concert | 11.900 kr. / 9.900 kr. / 8.900 kr. / 6.900 kr. |

