Rigoletto

Rigoletto er ein af þekktustu óperum sögunnar og er reglulega færð upp í flestum óperuhúsum veraldar. Í verkinu koma saman ástir, valdabarátta og örlög í æsispennandi fléttu, sem römmuð er inn af hrífandi tónlist meistara Verdis og inniheldur meðal annars hinar þekktu aríur „La donne e mobile“, „Questa o quella“ og „Caro nome“, að ógleymdum kvartettinum „Bella figlia de...ll’amore“.
Aðalsöngvarar eru Ólafur Kjartan Sigurðarson sem Rigoletto, Þóra Einarsdóttir sem Gilda og Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem Hertoginn af Mantua.
Í öðrum hlutverkum eru Jóhann Smári Sævarsson sem Sparafucile, Sesselja Kristjánsdóttir sem Maddalena og Bergþór Pálsson sem Monterone, auk þess sem Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafsson, Hlöðver Sigurðsson og Bragi Jónsson syngja minni hlutverk.
Listrænir aðstandendur eru : Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri, Stefán Baldursson leikstjóri, Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir leikmynd, Filippía Elísdóttir búningar og Páll Ragnarsson lýsing.
ATH! Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur hlutverk Gildu 14. nóvember
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 09.10.10 - Laugardagur | 20:00 | Rigoletto - FRUMSÝNING | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 8.000 kr. / 10.000 kr. / 6.000 kr. |
| 14.10.10 - Fimmtudagur | 20:00 | Rigoletto - 2. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 29.10.10 - Föstudagur | 20:00 | Rigoletto - 3. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 31.10.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rigoletto - 4. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 06.11.10 - Laugardagur | 20:00 | Rigoletto - 5. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 07.11.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rigoletto - 6. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 13.11.10 - Laugardagur | 20:00 | Rigoletto - 7.sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 14.11.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rigoletto - 8.sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 19.11.10 - Föstudagur | 20:00 | Rigoletto - 9. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |
| 21.11.10 - Sunnudagur | 20:00 | Rigoletto - 10. sýning | Íslenska óperan | Íslenska óperan | 5.900 kr. / 8.000 kr. / 3.600 kr. |


