- Þú ert hér »
Frönsk kvikmyndahátíð

NETSÖLU Á KVIKMYNDAPÖSSUM ER LOKIÐ. HÆGT ER AÐ NÁLGAST PASSANA Í HÁSKÓLABÍÓ.
Frönsk kvikmyndahátíð 2012
Frönsk kvikmyndahátíð í byrjun janúar hvers árs hefur fest sig rækilega í sessi sem fyrsti stóri menningarviðburður ársins. Árlega sækja hátt í 10 þúsund gestir Frönsku kvikmyndahátíðina og eru þeir orðnir vanir því að geta gengið að 10 gæðamyndum vísum. Úrvalið hefur sjaldnar verið glæsilegra og ber þar hæst að nefna tvær margverðlaunaðar myndir sem hafa vakið mikla athygli um allan heim: Listamaðurinn sem er efst á blaði í flestum verðlaunatilefningum þessa dagana og Við stefnum í stríð eftir unga móður sem lendir í kröppum dansi og segir sögu sína á hispurslausan hátt. Gaman er frá því að segja að þrjár myndir til viðbótar á hátíðinni eru leikstýrðar af konum; franskur kvikmyndaiðnaður gengur í endurnýjun lífdaga, þökk sé þessum kvenleikstjórum sem láta hér ljós sitt skína.
Að hátíðinni standa Græna ljósið og Háskólabíó, Institut français, Alliance française í Reykjavík á samt sendiráðum Frakka og Kanada. Hátíðin í ár er dagana 27. janúar - 9. febrúar og þær 10 myndir sem sýndar verða eru eftirfarandi:
Listamaðurinn (The Artist) Opnunarmynd
Nánar / Kaupa miða
Stríðsyfirlýsing (La Guerre est déclarée)
Nánar / Kaupa miða
Saman er einum of (Ensemble, c’est trop)
Nánar / Kaupa miða
Barnsfaðirinn (Le Père de mes Enfants)
Nánar / Kaupa miða
Athvarfið (Le Refuge)
Nánar / Kaupa miða
Hadewijch
Nánar / Kaupa miða
Sá sem kallar (Un Homme qui crie)
Nánar / Kaupa miða
Sérsveitin (Forces spéciales)
Nánar / Kaupa miða
Öld myrkursins (L‘Age des Ténèbres)
Nánar / Kaupa miða
Þrauki einn, fylgja hinir (Qu'un seul tienne ...)
Nánar / Kaupa miða
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 27.01.12 - Föstudagur | 20:00 | Frönsk kvikmyndahátíð - 5 mynda Passi | Háskólabíó | Græna ljósið | 3.900 kr. |

