- Þú ert hér »
Hallgrímur Helgason

Húslestur - Hallgrímur Helgason
Starmýri 2a, 108 Reykjavík
Frá 10 gráðum að 1000 ráðum
Lesið verður úr nýlegum skáldsögum í bland við óbirt ljóð og kvæði, undir augliti myndverka: Ath: Húslestur Hallgríms er í vinnustofu hans í Starmýri 2a, 108 Reykjavík. Gengið er á milli tveggja hvítra atvinnuhúsa að dyrum hvar yfir stendur: Post.
Húslestrar á Listahátíð 2012
Víða um borg
Á íslensku: 26. og 28. maí
Á þýsku: 30. og 31. maí og 1. júní
Höfundar bjóða heim í húslestra og er þetta í fjórða sinn sem gestum gefst færi á að heyra og sjá uppáhaldshöfund sinn á Listahátíð. Örfá sæti eru í boði á þessa einstöku viðburði með fjölbreytilegum skáldskap; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og óbirtu.
Nýmæli í ár eru þrír húslestrar á þýsku en margir íslenskir höfundar eiga fjölda aðdáenda utan landsteinanna. Þrjú skáld bjóða í húslestra sem fram fara á þýsku og vilja með því fylgja eftir velgengni og góðum viðtökum í haust þegar Ísland var heiðursgestaland á bókasýningunni í Frankfurt.
Þýskir húslestrar eru í samstarfi við Sögueyjuna Ísland.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 26.05.12 - Laugardagur | 14:00 | Hallgrímur Helgason - Húslestur | Starmýri 2a (108 Rvk) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.000 kr. |


