- Þú ert hér »
Anton Helgi Jónsson

Húslestur - Anton Helgi Jónsson
Bergstaðastræti 60, 101 Reykjavík
Eitt og annað ljóð
Í húslestrinum verður einkum boðið upp á ljóð, sum gamansöm og önnur fremur alvarleg. Án efa fá gestir að heyra einsöng án undirleiks sem og aðrar hugleiðingar skáldsins um lífið og tilveruna. Einnig munu hljóma nokkrar raddir af ættarmóti. Þá verða lesnir örstuttir sögukaflar og jafnvel lætt inn einni eða tveimur limrum. Allt þetta mun skáldið síðan tengja saman eftir bestu getu með eigin útskýringum.
Húslestrar á Listahátíð 2012
Víða um borg
Á íslensku: 26. og 28. maí
Á þýsku: 30. og 31. maí og 1. júní
Höfundar bjóða heim í húslestra og er þetta í fjórða sinn sem gestum gefst færi á að heyra og sjá uppáhaldshöfund sinn á Listahátíð. Örfá sæti eru í boði á þessa einstöku viðburði með fjölbreytilegum skáldskap; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og óbirtu.
Nýmæli í ár eru þrír húslestrar á þýsku en margir íslenskir höfundar eiga fjölda aðdáenda utan landsteinanna. Þrjú skáld bjóða í húslestra sem fram fara á þýsku og vilja með því fylgja eftir velgengni og góðum viðtökum í haust þegar Ísland var heiðursgestaland á bókasýningunni í Frankfurt.
Þýskir húslestrar eru í samstarfi við Sögueyjuna Ísland.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 26.05.12 - Laugardagur | 16:00 | Anton Helgi Jónsson - Húslestur | Bergstaðastræti 60 (101 Rvk) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.000 kr. |

