Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Húslestur - Margrét Örnólfsdóttir
Þinghólsbraut 80, 200 Kópavogi

Opið innbrot

Börn og unglingar eru spennandi fólk og eitt helsta áhugamál gestgjafans er að brjótast inn í þeirra hugarheima í gegnum bækur og bíómyndir og fara frjálslega með staðreyndir um tilfinningar, leyndarmál og innstu þrár. Gestum er boðið að taka þátt í þessari vafasömu iðju og kynnast íslenska auðmannssyninum Ara, kínverska þrælabarninu Jinghua og Aþenu sem er bara venjuleg stelpa í Reykjavík en samt alveg ein sinnar tegundar að ógleymdum pörupiltinum Steini sem er sendur til betrunarvistar hjá ömmu í Vestmannaeyjum. Að lokum er von á leynigesti úr leikverki í smíðum sem af augljósum ástæðum verður ekki kynntur frekar en við skulum segja að hann tilheyri dýraríkinu.

Komdu ef þú þorir!

Húslestrar á Listahátíð 2012
Víða um borg
Á íslensku: 26. og 28. maí
Á þýsku: 30. og 31. maí og 1. júní

Höfundar bjóða heim í húslestra og er þetta í fjórða sinn sem gestum gefst færi á að heyra og sjá uppáhaldshöfund sinn á Listahátíð. Örfá sæti eru í boði á þessa einstöku viðburði með fjölbreytilegum skáldskap; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og óbirtu.

Nýmæli í ár eru þrír húslestrar á þýsku en margir íslenskir höfundar eiga fjölda aðdáenda utan landsteinanna. Þrjú skáld bjóða í húslestra sem fram fara á þýsku og vilja með því fylgja eftir velgengni og góðum viðtökum í haust þegar Ísland var heiðursgestaland á bókasýningunni í Frankfurt.

Þýskir húslestrar eru í samstarfi við Sögueyjuna Ísland.

Dagsetningar

Dags. Kl. Atburður Staðsetning Umsjón Verð
28.05.12 - Mánudagur 15:00 Margrét Örnólfsdóttir - Húslestur Þinghólsbraut 80 (200 Kóp) Listahátíð í Reykjavík 2012 1.000 kr.

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class