- Þú ert hér »
Guðmundur Andri Thorsson

Húslestur - Guðmundur Andri Thorsson
Blikastíg 14, 225 Álftanesi
Úr Næstu bók
Fari allt að óskum verður lesið úr Næstu bók. En hver og hvernig hún verður kemur í ljós – vonandi. Kannski söguleg skáldsaga um drykkfellt skáld á 19. öld sem bjargar ungum dreng frá glötun. Kannski skáldsaga í bundnu máli um konu á Akureyri og karl í Hafnarfirði sem unnast en fá ekki að eigast. Kannski löng skáldsaga um Ætt. Kannski erlendar ljóðaþýðingar. Og kannski bara framhaldið af Valeyrarvalsinum ...
Húslestrar á Listahátíð 2012
Víða um borg
Á íslensku: 26. og 28. maí
Á þýsku: 30. og 31. maí og 1. júní
Höfundar bjóða heim í húslestra og er þetta í fjórða sinn sem gestum gefst færi á að heyra og sjá uppáhaldshöfund sinn á Listahátíð. Örfá sæti eru í boði á þessa einstöku viðburði með fjölbreytilegum skáldskap; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og óbirtu.
Nýmæli í ár eru þrír húslestrar á þýsku en margir íslenskir höfundar eiga fjölda aðdáenda utan landsteinanna. Þrjú skáld bjóða í húslestra sem fram fara á þýsku og vilja með því fylgja eftir velgengni og góðum viðtökum í haust þegar Ísland var heiðursgestaland á bókasýningunni í Frankfurt.
Þýskir húslestrar eru í samstarfi við Sögueyjuna Ísland.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 28.05.12 - Mánudagur | 16:00 | Guðmundur Andri Thorsson - Húslestur | Blikastíg 14 (225 Álftanesi) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.000 kr. |


