- Þú ert hér »
Kristín Marja Baldursdóttir

Húslestur á þýsku - Kristín Marja Baldursdóttir
Iðnó, risloft, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík
Athugið að lesturinn er eingöngu á þýsku!
Húslestrar á Listahátíð 2012
Víða um borg
Á íslensku: 26. og 28. maí
Á þýsku: 30. og 31. maí og 1. júní
Höfundar bjóða heim í húslestra og er þetta í fjórða sinn sem gestum gefst færi á að heyra og sjá uppáhaldshöfund sinn á Listahátíð. Örfá sæti eru í boði á þessa einstöku viðburði með fjölbreytilegum skáldskap; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og óbirtu.
Nýmæli í ár eru þrír húslestrar á þýsku en margir íslenskir höfundar eiga fjölda aðdáenda utan landsteinanna. Þrjú skáld bjóða í húslestra sem fram fara á þýsku og vilja með því fylgja eftir velgengni og góðum viðtökum í haust þegar Ísland var heiðursgestaland á bókasýningunni í Frankfurt.
Þýskir húslestrar eru í samstarfi við Sögueyjuna Ísland.
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 01.06.12 - Föstudagur | 17:00 | Kristín Marja Baldursdóttir - Húslestur á þýsku | Iðnó (101 Rvk) | Listahátíð í Reykjavík 2012 | 1.000 kr. |


