- Þú ert hér »
Point dansstúdíó

Point dansstúdíó - vorsýning
Vorsýningin er hápunktur hvers skólaárs hjá Point Dansstúdíó og að þessu sinni verður þemað íslensk tónlist og verður sýningin sett upp eins og sjónvarpsdagskrá.
Dagskrá sjónvarpsins þennan dag byrjar á barnatíma þar sem pollapönkarar sýna hvað í þeim býr. Í fréttum verður það helst að álfar og tröll þjóta út úr hólum sínum og fjöllum, í stanslausu stuði og með ryksuguna á fullu. Rigningin verður eflaust góð í veðurfréttunum og landsleikur í handbolta er vissulega ómissandi á góðu sjónvarpskvöldi. Djöflaeyjan verður líka á dagskrá og Söngvakeppni sjónvarpsins á eftir að koma skemmtilega á óvart.
Tæplega 400 nemendum skólans er skipt niður á tvær mismunandi sýningar. Allar sýningarnar fjórar eru laugardaginn 19. maí.
Sýningar eru kl 11:30 og 13:00 (hópur 1) og svo 16:00 og 17:30 (hópur 2).
Dagsetningar
| Dags. | Kl. | Atburður | Staðsetning | Umsjón | Verð |
|---|---|---|---|---|---|
| 19.05.12 - Laugardagur | 11:30 | Point dansstúdíó 2012 - Vorsýning - Hópur 1 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 2.000 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 13:00 | Point dansstúdíó 2012 - Vorsýning - Hópur 1 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 2.000 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 16:00 | Point dansstúdíó 2012 - Vorsýning - Hópur 2 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 2.000 kr. |
| 19.05.12 - Laugardagur | 17:30 | Point dansstúdíó 2012 - Vorsýning - Hópur 2 | Hof (Akureyri) | Miðasala Hofs | 2.000 kr. |


