- Þú ert hér »
Transformers: Revenge of the Fallen
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Eftir brjáluðu viðburði fyrstu myndarinnar vill Sam (Shia LeBeouf) ekkert meira en að lifa eðlilegu lífi í háskólanum með kærustu sinni, Mikaelu (Megan Fox). Optimus Prime, leiðtogi Autobots-vélanna, flytur honum þær fréttir um að friðurinn eigi ekki eftir að endast lengi og ef til vill sé stríðið milli þeirra og Decepticon-vélanna rétt að byrja. Sam kemst að því að hann geymir upplýsingar sem óvinurinn svífst einskis til að fá frá honum og fyrr en varir breytist jörðin í einn gríðarstóran vígvöll þar sem enn stærri hópur vélmanna en áður, þar á meðal Megatron upprisinn, ætlar sér að vinna lotuna og ganga frá Autobots-hópnum í eitt skipti fyrir öll.
Ath að Powersýningar eru á völdum sýningartímum!
Leikstjóri: Michael Bay
Handrit: Ehren Kruger & Roberto Orci
Leikarar: Megan Fox, Shia LaBeouf, Rainn Wilson, Hugo Weaving
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 147 min |
Frumsýnd 24/06/09 |
![]() |



