Bjarnfreðarson er sjálfstæður lokakafli í sögu þremenningana Georgs Bjarnfreðarsonar, Ólafs Ragnars og Daníels Sævarssonar. í myndinni kynnumst við uppvexti Georgs og hvernig uppeldi móður hans mótaði ungan dreng í það skrímsli sem áhorfendur hafa kynnst í hinum geysivinsælu og margverðlaunuðu Vaktarseríum. Kvikmyndin tekur upp þráðinn nokkrum árum eftir að síðasta sería endar og áhorfendur kynnast söguhetjunum þremur í nýju ljósi þar sem þeir gera upp fortíð sína á dramatískan og oft sprenghlægilan hátt.
Leikstjóri: Ragnar Bragason
Handrit: Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon & Ragnar Bragason
Leikarar: Jón Gnarr, Pétur Jóhann Sigfússon & Jörundur Ragnarsson
| Tegund Gamanmynd |
Tungumál Íslenska |
Lengd 106 min |
Frumsýnd 26/12/09 |
![]() |



