Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Beth Harper (Kristen Bell) gengur vel í starfi sínu á listafninu Guggenheim og stendur á þeim tímapunkti þar sem ást virðist vera munaður sem hún hefur ekki efni á. Hún hefur eytt árum í að bíða eftir hinum fullkomna ástarævintýri og er orðin bitur. Dag einn fer hún til Rómar til að vera viðstödd fljótfærnislegt brúðkaup yngri systur sinnar. Meðan á dvöl hennar stendur stelur hún smápeningum úr hinum fræga "ástarbrunni" og næstum samstundis er hún elt á röndum af biðlum, mönnum sem hentu smápeningunum sem hún tók í brunninn. Biðlarnir eru hinir ólíklegustu, smávaxinn pylsumógúll (Danny DeVito), renglulegur götugaldramaður (Jon Heder), draumórakenndur málari (Will Arnett) og sjálfsdýrkandi karlmódel (Dax Shepard). Á meðan að á þessu stendur er fréttamaður (Josh Duhamel) sem er gagntekinn af Beth að reyna að telja henni trú um að sönn ást sé ekki einungis til í ævintýrum og ástarsögum.
Leikstjóri: Mark Steven Johnson
Handrit: David Diamond & David Weissman
Leikarar: Kristen Bell, Josh Duhamel & Anjelica Huston
| Tegund Rómantísk mynd |
Tungumál Enska |
Lengd 100 min |
Frumsýnd 26/03/10 |
![]() |



