Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Invictus er sannsöguleg mynd sem segir frá því þegar að Nelson Mandela (Morgan Freeman) tók höndum saman við Francois Pienaar (Matt Damon), fyrirliða landsliðs Suður Afríku í rúgbí. Í sameiningu tókust þeir á við aðskilnaðarstefnuna á milli svartra og hvítra íbúa landsins og sameinuðu þjóðina, sem hafði aðskilið kynþættina bæði efnahagslega og samfélagslega. Nýkjörinn í forsetaembættið, áleit Mandela að hann gæti sameinað landið með alþjóðlegu tungumáli íþróttanna. Hann studdi við bakið á liðsmönnum landsliðs Suður Afríku og fylgir myndin sögulegri tilraun þeirra til þess að hreppa sigurverðlaunin í heimsmeistarakeppninni. Myndinni leikstýrir Clint Eastwood.

Tegund
Drama
Tungumál
Enska
Lengd
134 min
Frumsýnd
19/02/10
5

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash