Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Myrkrið umvefur bæinn Barrow í Alaska í heilan mánuð á ári hverju. Skuggalegur hópur af vampírum hefur komist að þessu og ætlar sér að njóta lífsins í þessari skuggaparadís þar sem grey bæjarbúar geta engum vörnum fyrir sig beitt og eru líkastir lömbum á leið til slátrunar.

Eben Oleson (Josh Harnett) og Stella (Melissa George) eiga í töluverðum hjónabandsvandræðum, ekki síst vegna þess að hún missti af síðustu flugvélinni úr bænum og þau þurfa nú að reyna að forðast hvort annað í þessa 30 myrku daga. Eins og vandræði þeirra væru ekki nóg út af fyrir sig þá þurfa þau nú að berjast við þetta blóðþyrsta vampíruhyski sem drepur hvern manninn á fætur öðrum.

David Slade leikstýrir hrollvekjunni en hún er að miklu leyti byggð á teiknimyndaseríu nokkurri.

Leikstjóri: David Slade
Handrit: Stuart Beattie, Brian Nelson & Steve Niles
Aðalhlutverk: Josh Hartnett, Melissa George, Danny Huston, Ben Foster & Mark Junior Boone

Tegund
Spennumynd
Tungumál
Enska
Lengd
90 min
Frumsýnd
09/10/07
3

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash