Avatar 3D
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Byltingakennd stórmynd eftir James Cameron leikstjóra Titanic.
Mynd sem kvikmyndaáhugafólk um allan heim hefur beðið eftir í mörg ár
og mun líklega breyta bransanum til frambúðar. Með aðalhlutverk fara
Sam Worthington, Sigourney Weaver, Michelle Rodriguez, Zoe Saldana og
Giovanni Ribisi. Heimsfrumsýnd 18. desember í þrívídd.
Avatar
gerist í framtíðinni á litlu tungli sem heitir Pandóra. Á Pandóru býr
ættbálkur sem nefnast Na´vi en það eru 3 metra háir frumbyggjar bláir
að lit sem hafa skýr einkenni mannfólks. Þetta eru friðsamar verur nema
það sé ráðist á þær. Mannfólkið getur ekki andað að sér loftinu á
Pandóru svo vísindamenn erfðafræðilega búa til blending af manni og
Na´vi sem kallast Avatar (manngervingur) og þeir stjórna þessum
Avatörum í gegnum hugartengsl/hugsanahlekk.
Lamaður
landgönguliði í bandaríska flotanum að nafni Jake Sully (leikin af Sam
Worthington) býður sig fram til þess að lifa sem Avatar á Pandóru og
njósna um Na´vi fyrir herinn en verður ástfanginn af Neytiri, fallegri
Na'vi prinsessu og fyrr en varir verður hann flæktur í átök milli
hersins og ættbálks hennar en innrás hersins gæti tortýmt plánetunni!
Leikstjóri: James Cameron
Handrit: James Cameron
Leikarar: Sigourney Weaver, Sam Worthington, Michelle Rodriguez, Giovanni Ribisi ofl
| Tegund Ævintýramynd |
Tungumál Enska |
Lengd 161 min |
Frumsýnd 18/12/09 |
![]() |
Laugarásbíó, sýningartímar
Veldu kvikmyndahús í flipunum að neðan til þess að birta sýningartíma þess
| Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | Mánudagur | Þriðjudagur |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 10.03 | 11.03 | 12.03 | 13.03 | 14.03 | 15.03 | 16.03 |
| Engir sýningartímar skráðir í þetta kvikmyndahús, veldu kvikmyndahús í flipunum að ofan til þess að birta sýningartíma þess! | ||||||


