Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Alvin, Theódor og Símon eru mættir aftur í stórskemmtilegu framhaldi fyrri myndar sem sló í gegn árið 2007 og tók yfir 25 þús manns í aðsókn hér á landi. Þeir þurfa nú að mæta Birgittu, Jónu og Elínborgu í hljómsveitinni skríkjunum í þessari frábæru gamanmynd fyrir alla fjölskylduna sem verður frumsýnd með íslensku og ensku tali annan í jólum um land allt.

Með helstu hlutverk í íslensku talsetningunni fara Atli Rafn Sigurðarson, Björgvin Franz Gíslason, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Inga María Valdimarsdóttir en þær þrjár síðast töldu tala fyrir skríkjurnar þrjár og Víðir Guðmundsson, Ólafur S.K. Þorvaldz og Bjartmar Þórðarson sem tala fyrir íkornana. Íslensk talsetning fór fram í Stúdíó Sýrlandi í nóvember 2009 undir leikstjórn Rósu Guðnýjar Þórsdóttur og framkvæmdastjóri var Páll Ólafsson.

Leikstjóri: Betty Thomas
Handrit: Jonathan Aibel, Glenn Berger & Will McRobb   
Leikarar: Anna Faris, Jesse McCartney, Justin Long & Matthew Gray Guble

Tegund
Fjölskyldumynd
Tungumál
Íslenska
Lengd
89 min
Frumsýnd
26/12/09
5

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash