- Þú ert hér »
Nanny McPhee and the Big Bang
Óskarsverðlaunaleikkonan Emma Thompson snýr aftur í hlutverk hinnar ófrýnilegu og göldróttu barnfóstru sem birtist upp úr þurru þegar hennar er mest þörf en minnst óskað. Í þetta sinn ber hún dyra hjá ungri móður (Maggie Gyllenhal) sem fullt í fangi með að hugsa um fjölskylduna og stóran búgarð á meðan eiginmaður hennar er í burtu í stríði. En McPhee uppgötvar fljótlega að á heimilinu geisar annað stríð, milli barnanna og tveggja ættingja úr borginni sem hafa sest að á búgarðinum og neita að fara aftur. Meðal annarra leikara eru Rhys Ifans, Bill Baily, Ralph Fiennes og Maggie Smith.
Leikstjóri: Susanna White
Handrit: Christianna Brand & Emma Thompson
Leikarar: Maggie Gyllenhaal, Ralph Fiennes & Emma Thompson
| Tegund Fjölskyldumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 109 min |
Frumsýnd 26/03/10 |
![]() |



