Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Óskarsverðlaunahafinn Russell Crowe er mættur sem sjálfur Robin Hood, goðsögnin í Englandi á 13. öld. Hér er sögð saga af hinum mikla bogmanni, Robin, frá því að hann berst við Frakka í her Ríkharðs konungs og þar til hann snýr aftur til bæjarins Nottingham sem er niðurníddur af spillingu og harðræði fógetans almræmda (Matthew Macfasyen). Robin safnar saman hópi ribbalda sem neita að láta fógetann kúga sig og halda til í skóginum þar sem þeir sitja fyrir yfirstéttarfólki og deila auðnum meðal þurfandi íbúa Nottinghamskíris. Robin Hood verður fljótlega hetja fólksins og nær einnig athygli hinnar fögru ekkju, Lafði Marion (Cate Blanchett). Þessi saga er sígild en birtist hér í alveg nýjum hasarbúningi í leikstjórn Ridley Scott.
Leikstjóri: Ridley Scott
Handrit: Brian Helgeland, Ethan Reiff & Cyrus Voris
Leikarar: Mark Strong, Russell Crowe & Cate Blanchett
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 140 min |
Frumsýnd 12/05/10 |
![]() |



