- Þú ert hér »
Brooklyn's Finest
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
New York löggurnar Eddie Dugan (Richard Gere), Sal Procida (Ethan Hawke) og Clarence Butler (Don Cheadle) eiga fátt sameiginlegt. Eddie er útbrunninn og á bara eftir eina viku í eftirlaunin, Sal hefur ákveðið að láta einskis ófreistað til að skapa veikri eiginkonu sinni og sjö börnum sínum betra líf og Clarence situr í fangelsi vegna leyniverkefnis en finnst hann eiga meira sameiginlegt með klefafélaga sínum (Wesley Snipes) en félögum sínum í lögreglunni. Þegar eiturlyfjadeild lögreglunnar ræðst í risavaxna aðgerð upplifa þessir ólíku menn sömu martraðarvikuna og stefna allir á sama uppgjörið.
Leikstjóri: Antoine Fuqua
Handrit: Michael C. Martin
Leikarar: Richard Gere, Don Cheadle & Ethan Hawke
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 140 min |
Frumsýnd 21/05/10 |
![]() |


