Ævintýrið um Mjallhvíti og dvergana sjö, stjúpmóðurina vondu, aðstoðarfólk hennar og prinsinn sem verður ástfanginn af Mjallhvíti lifnar við í þessari litríku og léttu grínútfærslu leikstjórans Tarsems
Singh með Juliu Robert í fantaformi sem vonda drottningin. Þegar drottning ríkisins deyr fær konungurinn sér nýja drottningu sem reynist heldur betur flagð undir fögru skinni, og göldrótt þar að auki.
Hún einsetur sér að ná öllum völdum í ríkinu og er á góðri leið með að takast það þegar hún verður yfir sig afbrýðisöm út í stjúpdóttur sína, Mjallhvíti, sem er ekki bara fallegri en hún heldur líka réttborinn arftaki krúnunnar.
Hin illviljaða drottning ákveður því að láta aðstoðarmann sinn fara með Mjallhvíti út í skóg og tryggja að hún eigi ekki afturkvæmt. Það verður Mjallhvíti hins vegar til lífs að vera bjargað af nokkrum
dvergum sem kenna henni síðan sitthvað um lífið og tilveruna. En þegar drottningin uppgötvar að Mjallhvít er enn á lífi ákveður hún að grípa til miður skemmtilegra ráða ...
Leikstjóri: Tarsem Singh
Handrit: Jacob Grimm & Wilhelm Grimm
Leikarar: Lily Collins, Julia Roberts & Armie Hammer
| Tegund Fjölskyldumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 104 min |
Frumsýnd 18/04/12 |
![]() |



