- Þú ert hér »
Men in Black 3 3D
Agent J (Will Smith) og K (Tommy Lee Jones) eru mættir aftur...í tíma.
J hefur séð ótal óskiljanlega hluti á 15 ára starfsferli hjá svartklæddu mönnunum, en ekki nokkur skapaður hlutur, ekki einu sinni geimverur, eru honum jafn framandi og félaginn hans, hinn síönugi og fámáli Agent K. En þegar líf K er stofnað í hættu, ásamt örlögum jarðarinnar, þarf J að ferðast aftur í tímann og bjarga málunum.
J uppgötvar að K hefur haldið ýmsum leyndarmálum alheimsins frá sér; leyndarmálum sem koma upp á yfirboðið þegar hann slæst í lið með yngri útgáfunni af Agent K (Josh Brolin) til að bjarga félaga sínum, stofnuninni og framtíð mannkynsins.
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld
Handrit: Etan Cohen
Leikarar: Will Smith, Tommy Lee Jones, Josh Brolin og Emma Thompson.
| Tegund Fjölskyldumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 110 min |
Frumsýnd 22/05/12 |
![]() |



