Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Ríkur aðalsmaður, sem býr í stórhýsi í París, lendir í slysi og lamast fyrir neðan háls. Hann auglýsir eftir aðstoðarmanni sem getur búið hjá honum og hugsað um sig. Ungur afbrotamaður úr fátækrahverfunum mætir í viðtal en hefur í raun ekki áhuga á starfinu. Sér til undrunar er hann ráðinn. Mennirnir tveir þróa með sér djúpan vinskap í kjölfarið.

Hér er á ferðinni kvikmynd sem er að fara mikla sigurför um allan heiminn; hún slær í gegn í hverju landinu á fætur öðru og er orðin langaðsóknarhæsta franska mynd allra tíma. Reyndar er hún orðin ein aðsóknarhæsta mynd allra tíma af myndum sem ekki eru á ensku.

Myndin var m.a. tilnefnd til níu César verðlauna og hlaut Omar Sy þau sem bestir leikari ársins fyrir túlkun sína á Driss. Hún hlaut einnig David di Donatell verðlaunin sem besta evrópska mynd ársins.

Myndin hefur slegið allrækilega í gegn á Íslandi og slegið öll aðsóknarmet sem hægt er að slá. Hún er formlega orðin aðsóknarhæsta mynd allra tíma hérlendis af þeim sem eru hvorki á íslensku né ensku og hefur þar sem slegið við myndum á borð við Karlar sem hata konur og Klovn.

Leikstjóri: Olivier Nakache og Eric Toledano
Handrit: Olivier Nakache og Eric Toledano
Leikarar: François Cluzet, Omar Sy og Anne Lee

Tegund
Gamanmynd
Tungumál
Franska
Lengd
112 min
Frumsýnd
15/06/12
1

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash