- Þú ert hér »
The Bourne Legacy
Jason Bourne hefur svipt hulunni af leyniverkefnum Bandaríkjahers, og sjórnendur þeirra, Pamela Landy (Joan Allen), Noah Vosen (David Strathairn) og Ezra Cramer (Scott Glenn), sæta nú rannsókn hjá alríkislögreglunni, FBI. Cramer vill ólmur hylja slóð sína, og biður um hjálp frá Eric Byer (Edward Norton), sem sjálfur stjórnar leyniverkefnum hjá CIA, Markmið hans er að fjarlægja öll ummerki um að leynistarfsemi hafi átt sér stað. Aaron Cross (Jeremy Renner) er útsendari fyrir leyniverkefnið Operation Outcome, en meðlimir þess nota sérstök lyf til að bæta líklamlega og andlega getu sína, og hann er einn af þeim sem Byer hyggst uppræta, ásamt öðrum útsendurum verkefnisins. Cross bjargar einum vísindamanna þess, Dr. Marta Shearing (Rachel Weisz), og saman leggja þau upp í för til þess að venja Cross af lyfjunum sínum og komast undan fólkinu sem vilja þau feig.
Leikstjóri: Tony Gilroy
Handrit: Tony Gilroy & Dan Gilroy
Leikarar: Jeremy Renner, Rachel Weisz & Edward Norton
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 135 min |
Frumsýnd 03/09/12 |
![]() |



