- Þú ert hér »
Goodbye First Love
Camilla er ákveðin og alvarleg 15 ára stúlka. Hún er ástfangin af Sullivan, strák sem er nokkru eldri. Hann er skotinn í henni en vill vera frjáls og kanna heiminn. Þegar hann fer til S-Ameríku án hennar er hún eyðilögð. Á næstu átta árum breytist hún úr ungling í konu, menntar sig og eignast aðra ástmenn – en þá birtist Sullivan á nýjan leik í lífi hennar. Hin tæplega þrítuga danskættaða Mia Hansen-Løve hefur gert myndir sínar í Frakklandi. Þetta er hennar þriðja mynd en Le Monde kallar hana einn hæfileikaríkasta leikstjóra Frakka af yngri kynslóðinni. Hansen-Løve þykir hafa einstaka hæfileika til að búa til magnað og persónulegt andrúmsloft í verkum sínum og þess sér sterk merki í þessari mynd sem fengið hefur frábær viðbrögð bíógesta og gagnrýnenda í París, New York og London á undanförnum mánuðum.
Leikstjóri: Mia Hansen-Løve
Handrit: Mia Hansen-Løve
Leikarar: Lola Créton, Sebastian Urzendowsky & Magne-Håvard Brekke
| Tegund Drama |
Tungumál Franska |
Lengd 110 min |
Frumsýnd 13/06/12 |
![]() |



