Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Byggt á sönnum atburðum. Bernie er útfararstjóri í smábæ í Texas. Hann vingast við Marjorie, auðuga en geðstirða ekkju, en ofbýður loks nöldur hennar og lítilsvirðing og kemur henni fyrir kattarnef. Enginn saknar hennar mánuðum saman þar til saksóknarinn á staðnum fer að snuðra. Bernie er handtekinn en bæjarbúar koma honum til varnar og krefjast þess að Bernie verði sýnd miskunn. Saksóknarinn sér engan annan kost en að biðja um að réttarhaldið verði fært í annan bæ langt í burtu. Þessi bráðskondna smábæjarsaga Richard Linklater hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda og hinn virti Jonathan Rosenbaum kallar hana “meistaraverk”. Linklater fær hér aftur í lið með sér þá Jack Black og Matthew McConaughey sem hann vann áður með í School of Rock annarsvegar og Dazed and Confused hinsvegar. Útkoman er kolsvört kómedía sem um leið er óður til sérvitringsskapar í Suðurríkjum Bandaríkjanna.

Leikstjóri: Richard Linklater
Handrit: Richard Linklater & Skip Hollandsworth
Leikarar: Jack Black, Shirley MacLaine & Matthew McConaughey

Tegund
Gamanmynd
Tungumál
Enska
Lengd
104 min
Frumsýnd
22/06/12
5

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class