Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Malia Kemur úr stoltri súdanskri fjölskyldu. Faðir hennar, Bah, er ættbálkahöfðingi og valdamikilli maður í samfélagi þeirra. Það skiptir hins vegar engu máli þegar Malia er tekin til fanga, ásamt fjölda annarra kvenna, í árás íslamskra stríðsmanna á þorpið hennar. Malia er flutt til Khartoum, höfuðborgar Súdans og þaðan seld til arabískrar fjölskyldu. Laila, nýji "eigandi" Maliu, beitir hana andlegu og líkamlegu ofbeldi í tilraun sinni til að brjóta hana niður og gera að hlýðnum þjóni. Eftir nokkur ár er Malia send til London til að vinna fyrir frænku Lailu, Haleema, en þar heldur sama þrælkunin áfram. Maliavinnur allan daginn og alla nóttina, fær enginn laun, ekkert frí, engin fríðindi og nánast aldrei að fara út úr húsi. Hún heldur hins vegar alltaf í vonina um að einn góðan veðurdag muni hún öðlast frelsi á nýjan leik.

Sýnd án texta

Leikstjóri: Gabriel Range
Handrit: Jeremy Brock
Leikarar: Wunmi Mosaku, Isaach De Bankolé & Lubna Azabal

Tegund
Drama
Tungumál
Enska
Lengd
77 min
Frumsýnd
18/05/12
2

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
World Class