Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Svartur á Leik er byggð á samnefndri metsölubók eftir Stefán Mána.  Kvikmyndin lýsir atburðum sem gerast undir síðustu aldamót, þegar íslenskir undirheimar gengu í gegnum mikið umbreytingaskeið.  Myndin er að miklu leiti byggð á sönnum atburðum.

Stebbi psycho (Þorvaldur Davíð Kristjánsson) flækist inn í heim eiturlyfja og glæpa í gegnum Tóta (Jóhannes Haukur Jóhannesson), æskuvin sinn frá Ólafsvík. Tóti hóf ferilinn sem handrukkari fyrir Jóa „Faraó“ sem er búinn að vera stærsti eiturlyfjasali Íslands síðan á 8. áratugnum.  Í félagi við hinn skuggalega Brúno (Damon Younger), ákveður Tóti að stíga skrefið til fulls og taka yfir eiturlyfjamarkaðinn.  Stebbi er skyndilega kominn í hringiðu atburða sem hann hefur enga stjórn á…

Þessi fyrsta kvikmynd leikstjórans Óskars Þórs Axelssonar er glæpamynd sem sver sig í ætt við Goodfellas og Pusher-myndirnar, en leikstjórinn Nicolas Winding Refn, er einmitt meðframleiðandi að Svartur á Leik.

Leikstjóri: Óskar Þór Axelsson
Handrit: Óskar Þór Axelsson eftir sögu Stefáns Mána
Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger & María Birta.

Tegund
Spennumynd
Tungumál
Íslenska
Lengd
104 min
Frumsýnd
28/02/12
3

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
World Class