Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Tvenn foreldrapör ákveða að hittast og ræða málin eftir að synir þeirra lenda í slagsmálum við hvorn annan í skólanum. Ætlunin er að taka á málinu með siðuðum hætti í rólegheitunum á einni notalegri kvöldstund. Eftir því sem líður á kvöldið fara ýmiss vandamál að koma upp á yfirborðið og spennan eykst milli paranna. Áður en yfir lýkur er kvöldberðarboðið huggulega algjörlega komið úr böndunum og allir búnir að missa stjórn á sér.

Óskarsverðlaunahafinn Roman Planski sýnir hér enn og aftur að hann er sannkallaður meistari kvikmyndanna. Hið talaða orð er hér í hans höndum beitt vopn og hefur hann safnað saman fjórum mögnuðum leikurum sem allir fara á kostum; Jodie Foster, John C. Reilly, Christoph Waltz og Kate Winslet.

Undir hans stjórn sýna þessir fjórir stórleikarar ótrúlega djúpar og minnistæðar frammistöður og njóta þeir þess greinilega í botn að leika þessa skrautlegu karaktera og að vinna með þetta einstklega bitastæða handrit.

Myndin hefur hlotið lof gagnrýnenda og rakað til sín verðlaunum og tilnefningum.

Leikstjóri: Roman Polanski
Handrit: Yasmina Reza & Yasmina Reza
Leikarar: Jodie Foster, Kate Winslet & Christoph Waltz

Tegund
Drama
Tungumál
Enska
Lengd
80 min
Frumsýnd
30/03/12
5

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash