Iron Sky
Hér er á ferðinni kolsvort kómedía sem hefur nú þegar vakið mikla eftirvæntingu um allan heim. Myndin var að hluta til fjármögnuð með fjármagni frá almenningi í gengum netið og er spennan meðal netverja gríðarleg. Myndin var afhjúpuð við hátíðlega athöfn á kvikmyndahátiðinni í Berlín í febrúar og fékk þar magnaðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.
Í síðustu andartökum seinni heimsstyrjaldarinnar nær hópur Nasista í leynilegri geimáætlun að koma sér undan tortímingu og flýja til tunglsins; sem sagt myrkvaða hluta tunglsins. Í heil 70 ára tekst þeim að leynast þar og byggja upp risavaxið borgvirki, með umfangsmiklum herflota af geimflaugum.
Þegar ameríski geimfarinn James Washington (Chrisopher Kirby) lendir á tunglinu, aðeins of nálægt leynilegum höfuðstöðvum Nasistanna, ákveður Foringi tunglsins að hin dýrðlega stund hefndarinnar sé runninn upp, fyrr en áætlað var. Washinton heldur því fram að sendiförin sé ekkert annað en kosningabrella núverandi forseta Bandaríkjanna (Stephanie Paul), en auðvitað er maðurinn að ljúga og auðvitað er hann að njósna vegna yfirvofandir árásar frá jarðarbúum. Fjórða ríkið verður að bregðast við!
Tveir fyrirtaks Nasistar, hinn miskunnarlausi Klaus Adler (Götz Otto) og hugsjónamanneskjan Renate Richter (Julia Dietze) ferðast til jarðarinnar til að undirbúa innrásina. Þegar herskip Tungl-Nasistanna fylla himininn, tilbúin að ráðast á grunlausa jarðarbúa er ljóst að hver maður, kona og þjóð þurfa að líta djúpt í eigin sál og endurmeta gildi sín og forgangsröðun.
Leikstjóri: Timo Vuorensola
Handrit: Johanna Sinisalo & Jarmo Puskala
Leikarar: Udo Kier, Kym Jackson & Julia Dietze
| Tegund Gamanmynd |
Tungumál Enska |
Lengd 93 min |
Frumsýnd 13/04/12 |
![]() |


