Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Jai Dixit (Abhishek Bachchan) er hér í annað skiftið að eltast við versta glæpamann sem um getur. Spennu-gamansaga um baráttu lögreglumanns við alþjóðlegan stórþjóf (Hrithik Roshan) sem notar nýjustu tækni til þess að fremja glæpi sína. Hann rænir bara þjóðargersemum s.s. krúnu Englandsdrottningar og elstu mynt veraldar. Eltingaleikurinn dregur Jack viðvegar um Indland og til Brasilíu. Bollywood mynd í sinnu fullkomnustu mynd þar sem jafnframt er gert grín að evrópskum og bandarískum spennumyndum. Dhoom 2 er fyrsta Bollywood myndin sem gerð hefur verið í Brasilíu og er tónlistin sambland af indverskri tónlist og samba.

Myndin er þriðja tekjuhæsta Bollywood myndin frá upphafi. Til gamans má geta að lögregluyfirvöld voru hrædd um að leyfa sýningar á henni vegna þess að þau töldu hana hvetja ungt fólk til ofsaaksturs. Hún hlaut Filmfare-verðlaunin fyrir besta leikara í karlhlutverki, besta förðun, bestu búninga. Aiwhwarya Rai vann Stardust awards sem besti leikari í kvenhlutverki. Á MTV India style hátíðinni rakaði Dhoom 2 til sín 8 verðlaunum.

Sýnd með enskum texta

Leikstjóri: Sanjay Gadhvi
Handrit: Vijay Krishna Acharya & Vijay Krishna Acharya
Leikarar: Abhishek Bachchan, Uday Chopra & Hrithik Roshan

Tegund
Spennumynd
Tungumál
Enska
Lengd
152 min
Frumsýnd
12/04/12
5

© 2013 Miði.is ehf - Server: VM-IS03



Brim
Uppfæra Flash