- Þú ert hér »
Indversk Hátíð: Vélmenni (Enthirian)
Tveir vísindamenn keppast um að gera hið fullkomna vélmenni. Þegar öðrum tekst að skapa vélmenni með mannlegar tilfinningar er hætta á ferðum, sérstaklega þegar vélmennið fer að hegða sér öðruvísi en vísindamaðurinn hafði hugsað sér og hann missir stjórn á atburðarásinni.
Þetta er merkileg mynd fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi er form myndarinnar mjög áhugavert og óvenjulegt fyrir íslenska áhorfendur, en hér er á ferðinni kvikmynd sem byggð er á svokölluðu kryddblönduformi (masala-format), sem er sérindverskt form. Myndin er kaflaskipt með spenniköflum, gamanmyndaköflum, rómantískum köflum sem skeytt er saman með dans- og söngvaatriðum. Þessi uppbygging kvikmyndar er mjög ólík því sem við eigum að venjast á vesturlöndum. En þetta mun vonandi veita mörgum íslenskum áhorfendum svolítið sérstaka upplifun. Leikstjóri myndarinnar er einn færasti leikstjóri Indlands í kryddblöndumyndum.
Þetta er dýrasta mynd sem gerð hefur verið í Asíu til þessa og jafnframt tekjuhæsta mynd sem gerð hefur verið á tamílsku. Tæknibrellumeistararnir eru frá Legacy effect þeir sömu sem unnu að Matrix, Avatar og Terminator.
Leikstjóri myndarinnar S. Shankar er margverðlaunaður tvær af myndum hans hafa verið tilnefndar til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin. Hann skrifar handrit að flestum myndum sinum líkt og hann gerir í Vélmenni.
Myndin vann National film award fyrir bestu brellurnar, bestu förðun, bestu leikstjóra, bestu búningahönnun, besta myndin, besti söngvari. Rajinikanth leikur bæði hlutverk vísindamannsins og vélmennisins. Rajinikanth er lítt þekktur hér á landi en hann er ofurkvikmyndastjarna í Asíu. Það sama má reyndar segja um Aiswarya Rai sem leikur aðalkvenhlutverkið í myndinni.
| Tegund Vísindaskáldskapur |
Tungumál Enska |
Lengd 165 min |
Frumsýnd 12/04/12 |
![]() |



