- Þú ert hér »
RS and D 2012: TOWN OF RUNNERS
Town of Runners var opnunarmynd Reykjavík Shorts & Docs hátíðarinnar 6.maí sl.
Myndin fjallar um þrjá efnilega langhlaupara í smábæinn Bekoji í suðurhluta Eþíópíu, Alemi, Hawii og Biruk. Það eru ekki ýkja mörg tækifæri sem bíða unga fólksins önnur en að gerast langhlauparar. Unga fólkið vill feta í fótspor þeirra fjölmörgu langhlaupara sem ólust upp í bænum en eru nú meðal bestu hlaupara heims. Á síðustu 20 árum hefur afreksfólk frá Bekoji unnið 8 gullverðlaun á Ólympíuleikunum, 32 heimsmeistaratitla og slegið 10 heimsmet. Árangrinu er ekki hvað síst að þakka hlaupaþjálfaranum Sentayehu Eshetu sem hefur þjálfað margan heimsmeistarann í langhlaupi til fjölda ára.
Heimildamyndin hefur vakið mikla athygli gagnrýnenda m.a. fyrir kvikmyndatöku og nálgun leikstjórans Jerry Rothwell. Town of Runners verður sýnd kl. 20 föstudaginn 18.maí og á sama tíma sunnudaginn 20.maí og þriðjudaginn 22.maí.
| Tegund Drama |
Tungumál Enska |
Lengd 90 min |
Frumsýnd 02/05/12 |
![]() |



