- Þú ert hér »
Fyrstu árin - Erik Nietzsche - 1. hluti
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Tilnefnd fyrir hönd Danmerkur
Fyrstu árin er háðsk gamanmynd um hinn unga og einfalda Erik Nietzsche sem setur allan sinn metnað í að gera kvikmynd um lauf. Eftir að hafa verið hafnað inngöngu í fjölda kvikmyndaskóla, kemst hann óvart inn í Kvikmyndaskóla Danmerkur, þar sem starfar fjöldi sjálfupptekinna, stjórnsamra kennara og stórskrýtnir samstúdentar telja sig vera snillinga. Í kvikmyndinni, missir Nietzsche ( leikinn af Jonatan Spang gamanleikara) smám saman sakleysi sitt og breytist í vægðarlausan, kaldhæðinn einstakling, sem verður eins og hinir félagar hans í kvikmyndagerðarlistinni. „Aðalpersóna kvikmyndarinnar þróast frá því að vera einfaldur hæfileikamaður í það að verða kaldhæðinn, útreiknaður listamaður, sem er nauðsynlegt ef þú ætlar að koma verkefnum þínum áfram,” segir Thuesen. „Ég þekki þetta sjálfur. Ég tel mig vera færan um að vingast við hvern sem er, ef það kemur sér vel fyrir kvikmyndina mína!”
Leikstjóri: Jacob Thuesen
Handritshöfundur: Lars von Trier
Myndin er sýnd með enskum texta
| Tegund Gamanmynd |
Tungumál Danska |
Lengd 100 min |
Frumsýnd 13/09/08 |
![]() |



