Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tilnefnd fyrir hönd Finnlands

Heimili dökku fiðrildanna fjallar um hinn 14 ára gamla Juhani (Niilo Synäoja) sem lengi hefur barist við afleiðingar hræðilegrar lífsreynslu sem hann varð fyrir sem barn. Eftir að hafa flækst á milli fósturheimila í sex ár, endar hann loks á afskekktu hæli fyrir vandræðaunglinga sem kallast „Eyjan”. Hælið er rekið eftir ströngum reglum af miskunnarlausum forstöðumanni Olavi Harjula (Tommi Korpela). Auk Harjula og sjö drengja eru einu íbúar eyjunnar kona forstöðumannsins (Kristina Halttu), tvær dætur þeirra og Tyyne, sem sér um eldamennsku. Eftir því sem ástandið á Eyjunni versnar neyðist Juhani til að takast á við erfiða hluti eins og fyrirgefningu og ábyrgð. „Það sem heillaði mig við söguna, sem sögð er í Heimili dökku fiðrildanna eru sterkar persónur og sú hugmynd að jafnvel þó þú sért lokaður inn í fangelsi eða á stofnun getur andinn alltaf verið frjáls, og í myndinni er alltaf von”, segir framleiðandinn.

Leikstjóri: Dome Karukoski
Handritshöfundur: Marko Leino, byggt á skáldsögu eftir Leena Lander

Myndin er sýnd með enskum texta

Tegund
Drama
Tungumál
Danska
Lengd
105 min
Frumsýnd
13/09/08
5

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash