Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tilnefnd fyrir hönd Svíþjóðar

Þið, sem lifið er árangur sjö ára nákvæmnisvinnu á vinnustofu Roy Anderssons, Studio 24 í Stokkhólmi, þar sem sá sænski leikstjóri sem leggur mestan metnað í sjónræna hlið verka sinna skapaði 49 af 50 myndrænum lýsingum sínum. Myndin er tekin í auðkennandi einlitum í gráum og grænum tónum, þar sem persónurnar eru fulltrúar lífsins (á öllum aldri og úr ólíkum samfélagshópum og þjóðarbrotum), sem lifa í fjarstæðukenndum og skilningslausum heimi þar sem niðurlæging viðgengst. „Enginn skilur mig”, æpir drukkin kona á bar, sem er fullur af þöglum vitnum. Leikskólakennari hágrætur fyrir framan börnin í leikskólanum vegna þess að eiginmaður hennar kallaði hana „druslu". Maður kvartar yfir fjárhagsörðugleikum á meðan tígulleg eiginkonan elskast með honum. „Persónurnar eru bæði fyndnar og dapurlegar, en líf þeirra er átakanlegur gamanleikur”, segir Andersson. Þið, sem lifið er kvikmynd um vanmátt einstaklingsins”.

Leikstjóri/handritshöfundur: Roy Andersson

Myndin er sýnd með enskum texta.

Tegund
Gamanmynd
Tungumál
Sænska
Lengd
95 min
Frumsýnd
13/09/08
5

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash