Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Lars Von Trier tekst enn á ný að hneyksla og skipta fólki í tvær fylkingar, nú með Antichrist, sem telst vera "erótísk hryllingsmynd", kannski sú eina sinna tegundar. Myndin var frumsýnd á Cannes í maí og gerði allt vitlaust.

Par missir son sinn er hann dettur út um glugga á meðan þau stunda kynlíf í næsta herbergi. Móðirin endar á spítala vegna sorgar sinnar, en eiginmaðurinn fer með hana heim og hyggst kljást við þunglyndi hennar upp á eigin spýtur, enda sálfræðingur sjálfur. Til að horfast í augu við ótta eiginkonunnar, koma þau sér fyrir í kofa út í skóginum "Eden" þar sem eitthvað óútskýrt gerðist sumarið áður. Maðurinn og konan afhjúpa dimmu hliðar náttúrunnar, fyrir utan kofann og innra með þeim í ýmsum lostafullum og grimmum athöfnum.

Charlotte Gainsbourg var valin besta leikkona Cannes kvikmyndahátíðarinnar fyrir ógleymanlega frammistöðu sína í myndinni.

Ath að myndin er sýnd ótextuð!

Leikstjóri: Lars von Trier
Handrit:
Lars von Trier
Leikarar: Willem Dafoe & Charlotte Gainsbourg

Tegund
Hryllingsmynd
Tungumál
Enska
Lengd
104 min
Frumsýnd
28/09/09
4

© 2010 Miði.is ehf



www.ha.is
Uppfæra Flash