Aðalhlutverkin eru í höndum Hollywood stórstjarnanna Brian Cox (Troy) og Paul Dano (Little Miss Sunshine,There Will Be Blood) . Heimilislaus drengur Lucas (Paul Dano) kynnist Jaques (Brian Cox) úrillum kráareiganda sem hefur fengið fimm hjartaáföll sökum gjálífis. Jaques tekur Lucas undir væng sinn með það fyrir augum að arfleiða hann að kránni. Allt gengur eftir óskum þar til að drukkin flugfreyja (Isild le Besco) kemur áætlunum Jaques í uppnám.
The Good Heart er tekin upp hérlendis, í New York og Dóminíska lýðveldinu. Dagur Kári er handritshöfundur sem og leikstjóri auk þess sem hljómsveit hans og Orra Jónssonar Slowblow sér um tónlistina í myndinni. Dagur Kári sló eftirminnilega í gegn með Nóa albinóa og hefur The Good Heart nú þegar fengið hvarvetna glimrandi viðtökur. Myndin hefur verið seld til tuttugu og tveggja landa og fengið dreifingu m.a. í Bandaríkjunum og Frakklandi. The Good Heart hefur fengið fjölda verðlauna nú síðast Norrænu kvikmyndaverðlaunin fyrir kvikmyndatöku.
Leikstjóri: Dagur Kári
Handrit: Dagur Kári
Leikarar: Paul Dano, Brian Cox and Clark Middleton
| Tegund Drama |
Tungumál Enska |
Lengd 90 min |
Frumsýnd 05/03/10 |
![]() |



