Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Hér er á ferðinni bráðskemmtileg heimildarmynd um hina goðsagnakenndu Önnu Wintour, sem hefur ritstýrt Vogue og drottnað yfir tískuheiminum síðastliðin 20 ár. Þegar kvikmyndin The Devil Wears Prada sló í gegn um allan heim fyrir nokkrum árum var ekkert farið í felur með það að karakterinn sem Meryl Streep lék svo ógleymanlega var byggður á Önnu Wintour og hér fáum við að sjá raunverulegu persónuna í essinu sínu.

Á hverju ára bíða milljónir manna um allan heim í ofvæni eftir því að komast yfir september tölublað Vogue. 2007 útgáfan vó 10 kíló og var stærsta tímarit allra tíma; það náði til 13 milljón manna og hafði afgerandi áhrif á 300 milljarða dollara tískuiðnaðinn.

Leikstjórinn R.J Cutler fær í þessari mynd óheftan og fordamælausan aðgang að Wintour og litríku starfsliði hennar við gerð þessa sögulega tímarits. Við skyggnumst djúp bak við tjöldin inn í heim sem á sér engan líka.

Leikstjóri: R.J. Cutler
Leikarar: Anna Wintour

Tegund
Heimildarmynd
Tungumál
Enska
Lengd
90 min
Frumsýnd
04/09/09
5

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Uppfæra Flash