- Þú ert hér »
Guð blessi Ísland
Helgi Felixson er Íslendingur, búsettur í Svíþjóð og virtur kvikmyndargerðarmaður erlendis sem hefur undanfarið ár gert fjöldan allan af vönduðum heimildarmyndum.
Hann var fyrir tilviljun staddur á Íslandi 6. október þegar Geir H. Haarde hélt sína frægu ræðu rétt fyrir setningu neyðarlaganna.
Það var erfitt að skilja nákvæmleg hvað var að gerast og ómögulegt að ímynda sér atburðina sem fylgdu í kjölfarið. En Helgi Felixson brást við með því að gera það sem hann gerir best; hann tók upp kvikmyndavélina og byrjaði að taka upp það sem fyrir augu bar.
Hverjar eru afleiðingar hrunsins fyrir venjulegt fólk í þessu landi? Við kynnumst lögreglumanni, vörubílstjóra og norn og við sjáum nýjar hliðar á Björgólfi Thor, Bjarna Ármanssyni, Jóni Ásgeiri og Geir H. Haarde.
Guð blessi Ísland er söguleg kvikmynd sem verður heimsfrumsýnd 6. október 2009 á Íslandi og verður í kjölfarið sýnd víða um heim.

| Tegund Heimildarmynd |
Tungumál Íslenska |
Lengd 100 min |
Frumsýnd 09/10/09 |
![]() |