Avatar
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Byltingakennd stórmynd eftir James Cameron leikstjóra Titanic. Mynd sem kvikmyndaáhugafólk um allan heim hefur beðið eftir í mörg ár og mun líklega breyta bransanum til frambúðar. Með aðalhlutverk fara Sam Worthington, Sigourney Weaver, Michelle Rodriguez, Zoe Saldana og Giovanni Ribisi. Heimsfrumsýnd 18. desember í þrívídd.
Avatar gerist í framtíðinni á litlu tungli sem heitir Pandóra. Á Pandóru býr ættbálkur sem nefnast Na´vi en það eru 3 metra háir frumbyggjar bláir að lit sem hafa skýr einkenni mannfólks. Þetta eru friðsamar verur nema það sé ráðist á þær. Mannfólkið getur ekki andað að sér loftinu á Pandóru svo vísindamenn erfðafræðilega búa til blending af manni og Na´vi sem kallast Avatar (manngervingur) og þeir stjórna þessum Avatörum í gegnum hugartengsl/hugsanahlekk.
Lamaður landgönguliði í bandaríska flotanum að nafni Jake Sully (leikin af Sam Worthington) býður sig fram til þess að lifa sem Avatar á Pandóru og njósna um Na´vi fyrir herinn en verður ástfanginn af Neytiri, fallegri Na'vi prinsessu og fyrr en varir verður hann flæktur í átök milli hersins og ættbálks hennar en innrás hersins gæti tortýmt plánetunni!
Leikstjóri: James Cameron
Handrit: James Cameron
Leikarar: Sigourney Weaver, Sam Worthington, Michelle Rodriguez, Giovanni Ribisi ofl
| Tegund Ævintýramynd |
Tungumál Enska |
Lengd 161 min |
Frumsýnd 18/12/09 |
![]() |



