Allangt er síðan Friðrik Þór hefur sent frá sér leikna kvikmynd og óhætt að segja að þessarar myndar sé beðið með þó nokkurri eftirvæntingu. Hér er Friðrik Þór í essinu sínu með persónulega, hjartnæma og bráðfyndna kvikmynd sem sýnir allar hans bestu hliðar sem kvikmyndargerðarmanns.
Myndin segir af Gógó, fullorðinni konu sem greinist með Alzheimer. Á sama tíma og Gógó berst við sjúkdóminn er sonur hennar í fjárhagskröggum vegna nýjustu kvikmyndar sinnar, "Börn náttúrunnar", sem enginn hefur áhuga á að sjá í kvikmyndahúsum landsins.
Hann trúir því statt og stöðugt að Óskarsverðlaunatilnefning sé handan við hornið á meðan myndin er sýnd fyrir tómum sölum og bankastjórinn skilur ekkert í því hvernig honum datt í hug að gera mynd um "gamalt fólk að ráfa um í þoku."
Í myndinni eru sýndar grátbroslegar hliðar á sjúkdómnum auk þess sem erfiðleikum og togstreitu aðstandenda er miðlað á einstakan hátt í sambandi sonarins við móður sína.
Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson
Handrit: Friðrik Þór Friðriksson
Leikarar: Kristbjörg Kjeld, Hilmir Snær Guðnason & Gunnar Eyjólfsson
| Tegund Drama |
Tungumál Íslenska |
Lengd 90 min |
Frumsýnd 01/01/10 |
![]() |
Háskólabíó, sýningartímar
Veldu kvikmyndahús í flipunum að neðan til þess að birta sýningartíma þess
| Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | Mánudagur | Þriðjudagur |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 10.03 | 11.03 | 12.03 | 13.03 | 14.03 | 15.03 | 16.03 |
| 18:00 | 18:00 | 18:00 | 16:00 | 16:00 | 18:00 | 18:00 |
| 18:00 | 18:00 |


