- Þú ert hér »
Edge of Darkness
Mel Gibson mætir til leiks sem rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas Craven, í morðdeild Boston lögreglunnar. Dóttir hans, Emma, deyr með sviplegum hætti og Craven hefur rannsókn á dauða hennar sem sviptir hulunni af leynilegu líferni Emmu. Þar með kemst Craven jafnframt á snoðir um leyndarmál stórfyrirtækis og pólitíska yfirhylmingu og er stöðvaður af fulltrúa CIA, sem leikinn er af Ray Winstone. Spennutryllir sem byggist á samnefndum BBC þáttum frá níunda áratugnum.
Leikstjóri: Martin Campbell
Handrit: William Monahan, Andrew Bovell & Troy Kennedy-Martin
Leikarar: Mel Gibson, Danny Huston & Ray Winstone
| Tegund Spennumynd |
Tungumál Enska |
Lengd 126 min |
Frumsýnd 05/02/10 |
![]() |



