- Þú ert hér »
The Human Centipede
Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Tvær sætar en kærulausar bandarískar stúlkur eru á ferðalagi um Evrópu. Í Þýskalandi enda þær með bilaðan bíl út í skógi. Þær leita hjálpar og finna afskekkta villu þar sem Dr. Heiter tekur á móti þeim. Næsta dag vakna þær í kjallara hússins og uppgötva sér til hryllings að þær eru fastar í kjallara hússins sem hefur verið gerður að nokkurs konar heimaspítala, ásamt japönskum manni. Gestjafinn kynnir sig sem fremsta skurðlækni heims. Hann er sestur í helgan stein en hans sérgrein var að aðskilja síams tvíbura. En nú hyggst hann ekki aðskilja "sjúklingana" sína þrjá, heldur sameina með ólýsanlega skelfilegri skurðaðgerð, sem hann lýsir fyrir þeim í smáatriðum. Markmiðið geðsjúka skurðlæknisins er að láta sjúkan draum rætast; að vera fyrstur í heiminum til að tengja fólk saman í gegnum meltingarkerfin og þar með skapa fyrstu "mannlegu margfætluna."
Ein mest sjokkerandi mynd allra tíma. Aðdáendur horror mynda halda ekki vatni. Alls ekki fyrir viðkvæma!
Leikstjóri: Tom Six
Höfundur: Tom Six
Leikarar: Dieter Laser, Ashley C. Williams & Ashlynn Yennie
| Tegund Hryllingsmynd |
Tungumál Enska |
Lengd 92 min |
Frumsýnd 27/08/10 |
![]() |



