Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tveir breskir kvikmyndagerðarmenn ásamt íslensku framleiðsluteymi kynna stolt nýja heimildarmynd í fullri lengd...

Kvikmyndin veitir sérstaka innsýn í jákvæðar hliðar sem íslenska þjóðfélagið hefur að geyma. Með hvaða hætti eru íslendingar farnir að stíga skref fram á við til að losa sig úr viðjum efnahagshrunsins, með sjálfbærum aðferðum? Hvernig er hægt að varðveita ósnortna náttúru landsins; stærsta ósnortna landsvæði í Evrópu, og á sama tíma útbúa tækifæri þar sem íslensk þjóð fær að dafna á ný? Hér er verið að skoða útkomuna þegar sjálfbærni er höfð að leiðarljósi í átt að uppbyggilegri þróun sem getur í senn orðið jákvæð fyrirmynd á heimsvísu.

"Future of Hope" gerir á áhrifaríkan hátt grein fyrir aukinni þörf hér á landi til að ná árangri og framförum í sjálfbærum lífsstíl. Í myndinni kynnumst við einstaklingum sem hafa farið óhefðbundnar leiðir til að komast hjá gjaldþroti og rutt þar með ótroðnar slóðir, öðrum til hvatningar. Í þessum dæmisögum upplifum við áskoranir, þrótt og bjartsýni þar sem hver einstaklingur finnur leiðir til að umbreyta líferni sínu og viðskiptum vegna síbreytilegs þrýstings sem nútíma efnhagskerfi hefur í för með sér. Á sama tíma veitir myndin margþættari sýn á Ísland, frábrugðið þeirri ímynd sem hefur verið viðloðandi í erlendum fjölmiðlum. Þetta mun vera fyrsta heimildarmyndin sem tekur mið af jákvæðum afleiðingum efnahagshrunsins.

Leikstjórn og handrit: Henry Bateman
Framleiðandi: Heather Millard
Tónlist: Biggi Hilmarsson

Tegund
Heimildarmynd
Tungumál
Enska
Lengd
75 min
Frumsýnd
03/09/10
5

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim