Tengt efni
Nánari upplýsingar á vefnum
Innan um hvítmáluð grindverk, vel snyrta garða og reisuleg úthverfahús leynist eitt, svart hús dauðum gróðri í kring. Þar býr hinn óyndislegi Gru en það sem nágrannarnir vita ekki er að undir húsinu hans er risastór leynihellir. Þar stjórnar Gru heilum her af skósveinum og hyggur á heimsyfirráð með því að stela tunglinu! Já, Gru hefur unun af illknyttum og notar allskonar tækniundur til að fá sínu framgengt, minnkunar-geisla, frost-geisla og hernaðarökutæki sem enginn getur stöðvað. Nema kannski þrjár litlar, munaðarlausar stúlkur sem sjá nokkuð í Gru sem enginn annar sér, föðurímynd.
Leikstjóri: Pierre Coffin & Chris Renaud
Handrit: Ken Daurio, Sergio Pablos & Cinco Paul
Leikraddir: Pétur Jóhann Sigfússon
| Tegund Gamanmynd |
Tungumál Íslenska |
Lengd 95 min |
Frumsýnd 03/09/10 |
![]() |



