Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Það er komið að fjórðu Underworld-myndinni og um er að ræða HEIMSfrumsýningu. Sem fyrr skartar myndin stórfenglegum tæknibrellum sem fá áhorfendur til að grípa andann á lofti. Breska leikkonan Kate Beckinsale snýr hér aftur flottari en nokkru sinni fyrr í hlutverki hinnar mögnuðu Selenu sem hefur leitt baráttu vampíranna fyrir tilverurétti sínum hingað til í fyrri myndum og ávallt haft sigur. Nú þarf hún að horfast í augu við mestu ógnina sem hún og vampírunar hafa nokkurn tíma haft yfir höfði sér og sinn versta og máttugasta óvin til þessa: Manninn.
 
Árás mannanna er leidd af vísindamanninum Jacob (Stephen Rea) sem er harðákveðinn í að sýna hvorki vægð né miskunn. Hann hefur svarið að linna ekki árásinni fyrr en allar vampíurnar eru dauðar, og býr yfir vopni sem á að tryggja það.
 
En Selena og þeir sem eru með henni í liði eru heldur engin lömb að leika sér við og búast nú til varnar sem aldrei fyrr, vitandi að sókn er ávallt besta vörnin og eina leiðin til að sigra í þessu stríði er að ráðast beint í greini óvinarins. Og stríðið er hafið... í bestu myndinni í seríunni til þessa!

Leikstjóri: Måns Mårlind & Björn Stein
Handrit: Len Wiseman & John Hlavin
Leikarar: Kate Beckinsale, Michael Ealy & India Eisley

Tegund
Hasarmynd
Tungumál
Enska
Lengd
88 min
Frumsýnd
20/01/12
3

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



Uppfæra Flash
Uppfæra Flash