Beint í leiðarkerfi vefsins.
Midi.is

Tengt efni

Nánari upplýsingar á vefnum

Listamaðurinn (The Artist)
2011 Frönsk kvikmynd
Tegund:  dramatísk gamanmynd
Lengd: 100 mín
Leikstjórn: Michel Hazanavicius
Aðalhlutverk: Jean Dujardin, Bérénice Bejo, John Goodman.

Þessi mynd kom öllum að óvörum árið 2011 og er talin líkleg til að fá Óskarsverðlaun fyrir bestu myndina 2012. Á tímum bíómynda í þrívídd, kemur „Listamaðurinn“ verulega á óvart: svart-hvít, þögul kvikmynd. Mjög djörf hugmynd sem gefur gersamlega slegið í gegn.

Hér er sögð saga George Valentin, sem var stjarna þöglu kvikmyndanna í Hollywood 1927. Þegar talmyndirnar komu til sögunnar, hrapaði stjarna hans mjög hratt. Á sama tíma reis stjarna Peppy Miller hátt í talmyndum, en hún hafði fram að því verið aukaleikari í mörgum þöglum myndum. Þessi kvikmynd fjallar um líf þeirra beggja og hvernig þau skarast.

Aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Myndin kom, sá og sigraði á Golden Globe verðlaunahátíðinni þar sem hún hlaut þrenn aðalverðlaun; besta myndin, besti leikarinn og besta tónlistin.

Tegund
Drama
Tungumál
Franska
Lengd
100 min
Frumsýnd
27/01/12
5

Háskólabíó, sýningartímar

Veldu kvikmyndahús í flipunum að neðan til þess að birta sýningartíma þess

Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur
22.02 23.02 24.02 25.02 26.02 27.02 28.02
18:00 18:00          
20:00 20:00          
22:00 22:00          

© 2012 Miði.is ehf - Server: IS03



World Class
Brim