Danson (Dwayne Johnson) og Highsmith (Samuel L. Jackson) eru hörðustu og heitustu löggurnar í New York. Þeir fá sér ekki tattú, fólk fær sér tattú af þeim! En félagar þeirra, Allen Gamble (Will Ferrell) og Terry Hoitz (Mark Wahlberg) eru algjör andstæða þeirra. Þeir eru engar hetjur, þeir eru “hinir” gaurarnir. En allar löggur eiga sinn dag og Gamble & Hoitz lenda í ótrúlegu máli sem engin annar vill koma nálægt. Þetta er tækifæri lífs þeirra en hafa þeir hreðjar í að klára verkefnið ? Frá leikstjóra Anchorman og Talladega Nights kemur geggjuð gamanmynd.
Leikstjóri: Adam McKay
Handrit: Adam McKay & Chris Henchy
Leikarar: Mark Wahlberg, Will Ferrell & Samuel L. Jackson
| Tegund Gamanmynd |
Tungumál Enska |
Lengd 107 min |
Frumsýnd 03/09/10 |
![]() |



